top of page

Back to the Roots - undirbúningur



Tíu austfirsk ungmenni á aldrinum 14-16 ára standa nú í ströngu við að undirbúa þátttöku í Erasmus + ungmennaskiptaverkefninu Back to the Roots. Austfirski hópurinn munu í lok apríl heimsækja jafnaldra sína í spænsku samtökunum ARAM Asociación por la Resiliencia del Alto.

Þar munu þau dvelja í fjallaþorpinu Cirat, kynna sér og vinna með náttúrutengsl og hvað við getum lært af fyrri kynslóðum þegar kemur að því að lifa í fallegri sátt við náttúruna, með nægjusemi og sjalfbærni að leiðarljósi.

Austfirski hópurinn hefur í vetur brallað ýmislegt til að undirbúa sig fyrir ferðina miklu og gestgjafahlutverkið þegar spænski hópurinn heimsækir okkur hér eystra í júní og fær að kynnast austfirskri menningu og náttúru.


Ungmennahópurinn okkar þrammaði til að mynda upp að Fardagafossi, brunaði niður á rassaþotum og fengu eftirminnilega kennslu í óbyggðaskyndihjálp, fóru í náttúru- og hópeflisferð að Skálanesi skoðuðu fugla, dáðust að selum, hlustuðu á öldugjálfur og nutu friðsældar og fegurðar. Þau verða því fær í flestan sjó þegar kemur að stóru leiðangrunum tveimur á Spáni og hér heima.

 
 
 

Comments


bottom of page