
Torfhleðsla
Í þessari smiðju fræðast börn og ungmenni um byggingarlist liðinna alda.
Markmið
Að kynnast því hvernig hlaða skal torfvegg ogfá að prófa
Að átta sig á handbragði og hugsun bak við slíka smíð
Að læra að velja hentugt grjót, handleika það til að skilja hvernig hægt er að búa til vegg úr því
Að fjalla um hverfandi handverksarf, sjálfbærni og hugvit
-------------------------------------
Hér má sjá tengingu milli smiðjunnar Torfhleðsla og hæfniviðmiða úr Aðalnámskrá grunnskóla fyrir 4., 7. og 10. bekk. Smiðjan tengist byggingarhefð, sjálfbærni, handverksmenningu og mati á menningararfi.
4 bekkur
Markmið í smiðju
Að kynnast torfveggjum og prófa að hlaða
---
Að átta sig á handbragði og hugmyndum bak við handverk
---
Að fjalla um menningararf og sjálfbærni
Tengt hæfniviðmið
Sagt frá eiginleikum lifandi og lífvana náttúru í nánasta umhverfi
---
Notað mismunandi efni og miðla til tjáningar í list- og verkgreinum
---
Greint mun á lífi fólks fyrr og nú og sýnt hvernig saga birtist í hversdagslífi
Greinasvið
Náttúrugreinar
List- og verkgreinar
Samfélagsgreinar
7. bekkur
Markmið í smiðju
Að hlaða torf og velja efni til smíði
Að skilja notkun efnis og hefð í smíðinni
---
Að ræða hugvit og sjálfbærni í byggingum fyrri tíma
Tengt hæfniviðmið
Getur greint helstu einkenni lifandi og lífvana náttúru og skýrt frá gagnsemi náttúruauðlinda
---
Getur sýnt hugkvæmni og frumleika í verkefnum og valið viðeigandi miðil
---
Getur gert grein fyrir áhrifum sögulegra atburða á lifnaðarhætti fólks
Greinasvið
Náttúrugreinar
List- og verkgreinar
Samfélagsgreinar
10. bekkur
Markmið í smiðju
Að læra að hlaða torf og vinna með náttúrulegt efni
---
Að fjalla um menningararf og sjálfbærar byggingaraðferðir
---
Að skoða náttúruauðlindir og nýtni í sögulegu samhengi
Tengt hæfniviðmið
Getur nýtt hugmyndir, hráefni og tækni við eigin sköpun
---
Getur fjallað um menningararfinn og lagt mat á mikilvægi hans
---
Getur útskýrt hvernig þróun samfélaga mótast af náttúruauðlindum og nýtingu þeirra
Greinasvið
Náttúrugreinar
List- og verkgreinar
Samfélagsgreinar
