top of page
kveikja.jpg

Kveikja bál

Í þessari smiðju læra börn og ungmenni að kveikja má með öruggum hætti. Þau læra hvað þarf til að kveikja bál og hvernig á að slökkva það. Þá læra þau að umgangast eld af öryggi.

Markmið

Að læra að velja þurran við og/eða efni í náttúrunni sem hægt er að nota til að kveikja upp með.

Að geta kveikt bál án þess að nota eldspítur, eða kveikjara og olíu

Að læra að nota eldstál til að kveikja eld

Að læra um fleiri aðferðir til að kveikja eld með frumstæðum hætti, eins og t.d. núningstré og tinnusteinum

Að læra hvernig best er að hlaða bál, þannig að engin hætta skapist

-----------------------------------

Hér má sjá tengingu milli smiðjunnar Að kveikja bál og hæfniviðmiða úr Aðalnámskrá grunnskóla fyrir 4., 7. og 10. bekk. Smiðjan styður við náttúruþekkingu, öryggisvitund, frumkvæði og sjálfbærni.

4. bekkur

Markmið í smiðju

Að læra að velja þurran við og/eða efni í náttúrunni sem hægt er að nota til að kveikja upp með

---

Að geta kveikt bál án þess að nota eldspítur, eða kveikjara og olíu

---

Að læra að nota eldstál til að kveikja eld

---

Að læra um fleiri aðferðir til að kveikja eld með frumstæðum hætti

---

Að læra hvernig best er að hlaða bál, þannig að engin hætta skapist

Tengt hæfniviðmið

Sagt frá eiginleikum lifandi og lífvana náttúru í nánasta umhverfi

---

+Sýnt öryggi í einföldum leikjum og verkefnum í ólíkum aðstæðum

---

Sýnt ábyrga og örugga umgengni við vinnu og frágang á vinnusvæði

---

Útskýrt hvernig náttúra og tækninýjungar nýtast í daglegu lífi

---

Útskýrt á einfaldan hátt áhrif vinnu sinnar á umhverfið

Greinasvið

Náttúrugreinar, skólaíþróttir og list- og verkgreinar

7. bekkur

Markmið í smiðju

Að læra að velja þurran við og/eða efni í náttúrunni sem hægt er að nota til að kveikja upp með

---

Að geta kveikt bál án þess að nota eldspítur, eða kveikjara og olíu

---

Að læra að nota eldstál til að kveikja eld

---

Að læra um fleiri aðferðir til að kveikja eld með frumstæðum hætti

---

Að læra hvernig best er að hlaða bál, þannig að engin hætta skapist

Tengt hæfniviðmið

Getur greint helstu einkenni lifandi og lífvana náttúru og skýrt frá gagnsemi náttúruauðlinda

---

Getur sýnt hæfni í að stjórna líkama sínum í fjölbreyttum hreyfingum við mismunandi aðstæður

---

Getur notað áhöld og tæki af öryggi og sýnt ábyrga umgengni við umhverfi og aðstæður

---

Getur tengt saman náttúru, nýtingu og sjálfbæra þróun í eigin samfélagi

---

Getur metið eigin vinnu með tilliti til umhverfisáhrifa og sjálfbærni

Greinasvið

Náttúrugreinar, skólaíþróttir og list- og verkgreinar

10. bekkur

Markmið í smiðju

Að læra að velja þurran við og/eða efni í náttúrunni sem hægt er að nota til að kveikja upp með

---

Að geta kveikt bál án þess að nota eldspítur, eða kveikjara og olíu

---

Að læra að nota eldstál til að kveikja eld

---

Að læra um fleiri aðferðir til að kveikja eld með frumstæðum hætti

---

Að læra hvernig best er að hlaða bál, þannig að engin hætta skapist

Tengt hæfniviðmið

Getur greint helstu einkenni og eiginleika náttúrulegra auðlinda og metið notkun þeirra í ljósi sjálfbærni

---

Getur nýtt sér hreyfifærni og líkamsvitund í fjölbreyttum aðstæðum og tekið ábyrgð á eigin öryggi

---

Getur sýnt öryggi og ábyrgð í meðferð verkfæra og tækja, ásamt því að meta hættu og áhættu

---

Getur útskýrt samspil náttúru og samfélags og tekið rökstudda afstöðu til umhverfismála

---

Getur tekið meðvitaðar ákvarðanir í verklegum verkefnum út frá umhverfissjónarmiðum

Greinasvið

Náttúrugreinar, skólaíþróttir og list- og verkgreinar

bottom of page