Ævintýraferð fjölskyldunnar í Kverkfjöll og Öskju
fim., 06. ágú.
|Kverkfjöll


Tími og staðsetning
06. ágú. 2026, 08:00
Kverkfjöll
Um námskeiðið
Náttúruskólinn og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs fara í enn eina Ævintýraferð fjölskyldunnar en nú er farið inn í Kverkfjöll og Öskju þar sem þjóðsögurnar lifna við. Ferðin verður farin 6. til 9. ágúst 2026.
Verð 58.500 kr. fyrir fullorðna og 24.500 kr. fyrir börn. Innifalið: Rúta, leiðsögn og gisting.
Ferð um einstakt landslag og náttúrufegurð þar sem þögnin er engu lík, þjóðsagaarfurinn lifnar við og auðvelt er að gleyma sér í andartakinu.
Dagur 1.
Hittumst við hús FFF Tjarnarási 8 á Egilsstöðum kl 8:00 og hoppum um borð í fjallarútuna Frú Valgerði.
Ekið af stað inn í Kverkfjöll og stoppað verður á slóðum útilegumanna í Hvannalindum og gengið þar um með leiðsögn frá þjóðgarðinum. Komið í Sigurðarskála seinnipartinn, þar sem hópurinn kemur sér notalega fyrir. Kvöldið nýtt til leikja, sögustundar og gleði í ágúströkkrinu.
