Fjölskylduhelgi í Óbyggðasetrinu
lau., 23. nóv.
|Óbyggðasetrið
Ævintýraleg helgi í Óbyggðasetrinu þar sem fjölskyldan tekst saman á við fjölbreytt verkefni tengd útivist og náttúru undir handleiðslu reyndra kennara og útivistarfólks. Samvera og sköpun minninga í sögulegu umhverfi og stórkostlegri náttúru.


Tími og staðsetning
23. nóv. 2024, 10:00 – 24. nóv. 2024, 13:00
Óbyggðasetrið, 64.964220, -15.157244, 701, Iceland
Um námskeiðið
Ævintýraleg helgi í Óbyggðasetrinu þar sem fjölskyldan tekst saman á við fjölbreytt verkefni tengd útivist og náttúru undir handleiðslu reyndra kennara og útivistarfólks. Samvera og sköpun minninga í sögulegu umhverfi og stórkostlegri náttúru. Viðfangsefni helgarinnar eru vissulega háð veðri og vindum en við stefnum á þetta verða meðal annars ævintýraganga með hestum, tálgun, rötun með korti og áttavita, fjársjóðsleit, hnútar og línuvinna, varðeldur, vasaljósaratleikur, stjörnuskoðun úr heita pottinum.
Hver fjölskylda getur valið gistimöguleika og verðflokk sem henta:
A. Námskeið, fæði, baðhús, safn og uppábúið rúm eða svefnpokapláss í Baðstofunni: 27.000 kr fyrir fullorðin og 13.000 kr fyrir barn.
B. Námskeið, fæði, baðhús, safn og tveggja manna herbergi með sameiginlegri salernisaðstöðu: Fullorðinn 30.000 kr og 15.000 kr fyrir barn
C. Námskeið, fæði, baðhús, safn og tveggja manna herbergi með sérsalernisaðstöðu: 35.000 kr fyrir fullorðin og 17.500 kr fyrir barn.
D: Námskeið, fæði, baðhús, safn og þriggja manna herbergi með sérsalernisaðstöðu: 35.000…
