

Tími og staðsetning
06. mar. 2025, 15:30 – 17:00
Location is TBD
Um námskeiðið
Náttúruskólinn og UMF Þristur kynna nýtt námskeið, Náttúruupplifun með hesta, fyrir börn í 1.-2. bekk sem fram fer á fimmtudögum í mars.
Nýtt námskeið fyrir börn sem elska dýr/ hesta og útivist.
Námskeiðið fer fram í fallegri náttúru í kringum Iðavelli / Vallanes.
Við fræðumst um grundvallaratriði í sambandi við hesta og förum svo í göngutúr saman með 2 hesta.
Börnin skiptast á að teyma (með hjálp) og að fara á bak. þar er hægt að upplifa margt skemmtilegt: að finna og njóta hreyfingar hestsins, að framkvæma jafnvægisæfingar og ( fyrir þau sem vilja ) að læra byrjunaræfingar fyrir rétt taumhald og ásetu.
Aðaláherslan er að eiga gleðistund úti og að njóta bæði náttúrunnar og samverunnar með hestinum.
