Skapandi útiverur
mán., 20. apr.
|Egilsstaðir
Þann 20. apríl hefst afar spennandi námskeið á vegum Náttúruskólans þar sem aðferðum list- og náttúrumeðferðar er beitt til að auka seiglu, sjálfstraust, samvinnu, sköpunargleði og sjálfstæði barna sem þurfa sérstakan stuðning.


Tími og staðsetning
20. apr. 2026, 16:30
Egilsstaðir, 700 Egilsstaðir, Iceland
Gestir
Um námskeiðið
Skapandi útiverur
Þann 20. apríl hefst afar spennandi námskeið á vegum Náttúruskólans þar sem aðferðum list- og náttúrumeðferðar er beitt til að auka seiglu, sjálfstraust, samvinnu, sköpunargleði og sjálfstæði barna sem þurfa sérstakan stuðning. Námskeiðið var einnig haldið síðastliðið haust og tókst afar vel. Þá var lögð áhersla á frumöflin fjögur en nú verður unnið markvisst með dýr í náttúrunni.
Námskeiðið nýtur styrks frá Soroptimistaklúbbi Austurlands og Allir með - Hvatasjóðs UMFÍ og ÍSÍ og er haldið í samstarfi við Ungmennafélagið Þristinn. Námskeiðið er sérstaklega ætlað austfirskum börnum 8-13 ára, sem af einhverjum sökum þurfa aukinn stuðning til tómstundaþátttöku.
Dagsetningar og uppbygging námskeiðsins
Námskeiðið fer fram á tímabilinu 20. apríl- 14. maí og samanstendur annars vegar af skapandi myndlistar- og náttúrutímum á mánudögum kl 16:30-18:00 (20., 27. apríl, 4., 11. maí) í nágrenni Egilsstaða og uppskeru- og ævintýraferð í Lynghól í Skriðdal á Uppstigningadag 14. maí.
Leiðbeinendur:
