Tengsl og Töfrar
sun., 17. maí
|Teigarhorn
Náttúruverndarsamtök Austurlands NAUST og Nátturuskólinn standa fyrir fræðslu- og fjölskylduferðum á næstu mánuðum. 17. maí kynnumst við æðarvarpinu og ævintýralandinu við Teigarhorn og bregðum okkur að Blábjörgum í sandsköpun og fjölskyldujóga


Tími og staðsetning
17. maí 2026, 10:00
Teigarhorn, Teigarhorn, 766, Iceland
Um námskeiðið
Náttúruverndarsamtök Austurlands NAUST og Nátturuskólinn standa fyrir fræðslu- og fjölskylduferðum á næstu mánuðum.
Þann 17. maí kynnumst við æðarvarpinu og ævintýralandinu við Teigarhorn og bregðum okkur að Blábjörgum í sandsköpun og fjölskyldujóga í fjörunni.
Hist við Teigarhorn kl. 10.00, klædd til útivistar og með nestisbita.
Engin skráning eða þátttökugjöld, bara mæta með góða útiveruskapið.
Um er að ræða upplifunarferðir í náttúruna þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur á öllum aldri kynnist betur náttúrunni og eigin nærumhverfi, skapi minningar og njóti samveru í og með náttúrunni, fræðist um og heillist af mikilfengleika hennar í stóru og smáu.
Lagt er upp með að fólk komi sér sjálft á staðinn en njóti leiðsagnar þar.
