Tengsl & Töfrar
sun., 05. júl.
|Hólmanes - Nature Reserve
Náttúruverndarsamtök Austurlands NAUST og Nátturuskólinn standa fyrir fræðslu- og fjölskylduferðum á næstu mánuðum. 5. júlí kynnumst við ævintýralandinu Hólmanesi.


Tími og staðsetning
05. júl. 2026, 10:00
Hólmanes - Nature Reserve, Hólmanes 731, 731, Iceland
Um námskeiðið
Náttúruverndarsamtök Austurlands NAUST og Nátturuskólinn standa fyrir fræðslu- og fjölskylduferðum á næstu mánuðum.
Þann 5. júlí göngum við um Hólmanesið við Eskifjörð.
Hist við bílastæði Hólmaness kl. 10.00, klædd til útivistar og með nestisbita.
Engin skráning eða þátttökugjöld, bara mæta með góða útiveruskapið.
Um er að ræða upplifunarferðir í náttúruna þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur á öllum aldri kynnist betur náttúrunni og eigin nærumhverfi, skapi minningar og njóti samveru í og með náttúrunni, fræðist um og heillist af mikilfengleika hennar í stóru og smáu.
Lagt er upp með að fólk komi sér sjálft á staðinn en njóti leiðsagnar þar.
