top of page

Frábærar skapandi útiverur !

Síðustu fjórar vikur hefur námskeiði Skapandi útiverur staðið yfir. Námskeiðið var ætlað börnum sem þurfa  sértækan stuðning og þar var unnið út frá hugmyndum náttúru- og listmeðferðar í að efla seiglu. samvinnu og sjálfstæði, nýta náttúru og listsköpun til að róa taugakerfi, styrkja ímyndunarafl og sköpunargleði.


Það voru þær Íris Lind Sævarsdóttir kennari, listmeðferðarfræðingur, myndlistarkona og jógakennari, Hildur Bergsdóttir félagsráðgjafi með áherslu á náttúrumeðferð, landvörður, fjallaleiðsögumaður, útivistarþjálfari og jógakennari, Sæunn Sigvaldadóttir þroskaþjálfi og býflugnabóndi með meiru og Angelika Liebermeister leikskólakennari, tamingakona og sérkennari í hestamennsku fatlaðra sem komu að námskeiðinu ásamt aðstoðarfólki. 


Námskeiðið samanstóð af fjórum síðdegissamverustundum í náttúrunni þar sem unnið var með dýr og náttúrulegan efnivið. Oftast nær var hópurinn í fallega sköpunarhofinu okkar við Eyvindará en brá þó einnig undir sig betri fætinum og heimsótti hænur, býflugur, kisur og hross í Snjóholti.


Farið var í lokaleiðangur á fjár- og geitabúið á Lynghól í Skriðdal en þar vörðum við heilum degi saman við leik og störf. Mikið skríkt, skottast og skapað, farið á hestbak, kiðlingar knúsaðir í bak og fyrir , kíkt á sauðburð og  búnar til fjársjóðsskjóður, fánar, hrossháraskraut, vísdómsspil, óskaskeljar, eldaðar kræsingar yfir opnum eldi og dáðst að fjallafegurð og fuglasöng.


Dýrmæt samvera sem einkenndist af fallegum samskiptum, forvitni um náttúruna og virðingu fyrir fegurð hennar og undrum, stórum sigrum og smáum þar sem stigið var út fyrir ýmsa þægindaramma í að tengjast dýrum, vippa sér á hestbak, vinna saman með ólíkum einstaklingum og fara án foreldra í ævintýraleiðangur.


Soroptimistaklúbbur Austurlands ásamt Allir með Hvatasjóði UMFÍ og ÍSÍ í samstarfi við UMF Þristinn, gerði okkur kleift að bjóða uppá þetta námskeið að þessu sinni og fyrir það erum við undur þakklát.


 
 
 

Comments


bottom of page