top of page

Tengsl og Töfrar

Náttúruverndarsamtök Austurlands NAUST og Nátturuskólinn standa fyrir fræðslu- og fjölskylduferðum á næstu mánuðum.


17. maí kynnumst við æðarvarpinu og ævintýralandinu við Teigarhorn og bregðum okkur að Blábjörgum í sandsköpun og fjölskyldujóga í fjörunni.


Hist við Teigarhorn kl. 10.00, klædd til útivistar og með nestisbita.

Engin skráning eða þátttökugjöld, bara mæta með góða útiveruskapið.


Um er að ræða upplifunarferðir í náttúruna þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur á öllum aldri kynnist betur náttúrunni og eigin nærumhverfi, skapi minningar og njóti samveru í og með náttúrunni, fræðist um og heillist af mikilfengleika hennar í stóru og smáu. Lagt er upp með að fólk komi sér sjálft á staðinn en njóti leiðsagnar þar.

 
 
 

Comments


bottom of page