Tengsl & Töfrar á Teigarhorni
- natturuskolinn
- Jun 1
- 1 min read
Fyrsta Tengsl & töfrar ferð Náttúruskólans og NAUST / Náttúruverndarsamtök Austurlands fór fram þann 17. maí síðastliðinn.
Haldið var að Teigarhorni þar sem þátttakendur á öllum aldri kynntu sér sögu staðarins allt frá veðurmælingum til vinnslu hákarlalýsis undir leiðsögn Rúnars Matthíassonar landvarðar.
Vappað var um í fjöruborðinu undir úandi vorsöngvum æðarfuglsins, dáðst ýmist af mikilfenglegri fjallasýn eða fjársjóðum fjörunnar, kynnst hinum ýmsu steintegundum sem magnað var að virða fyrir sér í lúpum á Steinasafni staðarins.
Því næst var haldið að Blábjörgum í Berufirði. Notaleg náttúrutengslastund og jóga í fjörunni, sæskrímsli og kynjaverur sköpuð úr sandi og andað djúpt og hlustað á öldugljáfrið
Takk fyrir nærandi samveru í náttúrunni
Næsta Tengsl & Töfraferð verður farin 5. júlí um Hólmanes og við erum strax farin að hlakka til.








Comments