top of page

Skapandi útiverur

Þann 20. apríl hefst afar spennandi námskeið á vegum Náttúruskólans þar sem aðferðum list- og náttúrumeðferðar er beitt til að auka seiglu, sjálfstraust, samvinnu, sköpunargleði og sjálfstæði barna sem þurfa sérstakan stuðning.

Námskeiðið var einnig haldið síðastliðið haust og tókst afar vel. Þá var lögð áhersla á frumöflin fjögur en nú verður unnið markvisst með dýr í náttúrunni.


Námskeiðið nýtur styrks frá Soroptimistaklúbbi Austurlands og Allir með - Hvatasjóðs UMFÍ og ÍSÍ og er haldið í samstarfi við Ungmennafélagið Þristinn. Námskeiðið er sérstaklega ætlað austfirskum börnum 8-13 ára, sem af einhverjum sökum þurfa aukinn stuðning til tómstundaþátttöku.


Dagsetningar og uppbygging námskeiðsins

Námskeiðið fer fram  á tímabilinu 20. apríl- 14. maí og samanstendur annars vegar af skapandi myndlistar- og náttúrutímum á mánudögum kl 16:30-18:00 (20., 27. apríl, 4., 11. maí) í nágrenni Egilsstaða og uppskeru- og ævintýraferð í Lynghól í Skriðdal á Uppstigningadag 14. maí.


Leiðbeinendur:

 Íris Lind Sævarsdóttir myndlistarkennari, listmeðferðarfræðingur og jógakennari

Hildur Bergsdóttir félagsráðgjafi með sérhæfingu í náttúrumeðferð og reynslunámi, fjallaleiðsögukona, útivistarþjálfari, landvörður og jógakennari.

Sæunn Sigvaldadóttir þroskaþjálfi, kennari og býflugnabóndi.

Auk þess verður aðstoðarfólk til stuðnings eftir þörfum.


Verð

Námskeiðið er sem fyrr segir styrkt af Soroptimistaklúbbi Austurlands og Allir með Hvatasjóði UMFÍ og ÍSÍ, en þátttakendur greiða 10.000 kr. þátttökugjald. Innifalið er öll kennsla og efniskostnaður.


Skráning fer fram hér 




 
 
 

Comments


bottom of page