Útiverur í óbyggðaferð
- natturuskolinn
- Dec 17, 2025
- 1 min read
Útiverurnar okkar galvösku áttu viðburðarríka æfinga- og ævintýrahelgi í Óbyggðasetrinu í Fljótsdal, á dögunum. Þar var hver einasta stund vel nýtt og byrjað á því að brýna þolgæði og þrautseigju með göngu upp í Gjárhalla. Þar beið okkar auðvitað birkihríslan eina, álfasögur og stórkostlegt útsýni á Snæfellið.

Á heimleiðinni fikruðum við okkur á kláfnum góða yfir Jökulsá í Fljótdal, kíktum við á Kleif, fræddumst um heystrengi og lausnamiðaða hugsun fyrri tíma.
Notalegt var að koma í hlýjuna í baðstofunni í Óbyggðasetrinuog ylja köldum tám og takast á við talstöðva- og samskiptaæfingar og heyra mátti óma úr hornum og skúmaskotum, ,,móttekið, yfir!" Þegar ylur var kominn á allar tær og hópurinn orðinn öllu fróðari um mikilvægi skýrra talstöðvasamskipta héldum við út í síðdegiskulið -17°c og vindgnjóstur enda eru útiverur harðgerðar verur sem kunna að klæða sig. Skammdegisrökkrið nýttist vel í áttavitaæfingar, Geochatcing fjársjóðsleit og æsilega æfingu með snjóflóðaýla. Hópurinn hafði því margt að ræða yfir lasanja í eldhúsinu í Óbyggðasetrinu og kvöldið í baðstofunni nýtt í leiki, spil og sjónarspil tunglsskins og dansandi norðurljósa. Notalegt að skríða í pokann og sofið vært.
Sunnudagsmorguninn var nýttur í frágang, þoturassabrun, snjókast og almenna útiverugleði. Haldið til byggða um hádegi enda von á leiðindabyl síðdegs, alsæl og reynslunni ríkari.





Comments